
Velkomin um borð
Heimili þitt
við Norður-Atlantshafið
Byrjaðu ævintýrið á einstakri siglingu með Norrönu. Veldu þá tegund af klefa sem hentar þér, allt frá venjulegum upp í lúxus. Njóttu líkamsræktaraðstöðunnar okkar, slakaðu á í heitum sjópottum úti, njóttu ljúffengra máltíða og láttu heillast af stórkostlegu útsýni. Með einstökum þægindum og stórkostlegu umhverfi tryggir Norröna ánægjulega og eftirminnilega ferð.
Klefar
Veldu klefa sem hentar þér. Við bjóðum upp á allt frá venjulegum herbergjum til lúxusherbergja. Öll herbergin eru með flatskjá, fataskáp, skrifborði, sér baðherbergi.
Veitingastaðir og kaffihús
Hvort sem þig langar í drykk, ferskan kokteil, cappuccino með smjörhorni eða góðan hádegisverð – þá bjóðum við upp á allt þetta og meira ti.

Skemmtun
Upplifðu notalega og skemmtilega ferð með Norrönu. Dagskráin er full af skemmtilegum afþreyingum, m.a. lifandi tónlist, fróðlegir fyrirlestrar og spennandi bingó leikir. Ef þú ert að leitast eftir rólegum tíma, þá getur þú farið í notalega leshornið eða skorað á fjölskyldu og vini að spila í Undirhúsinu.
Fríhöfn, aðstaða og afþreying
Það er alltaf eitthvað að gera um borð fyrir ferðalanga á öllum aldri.

Móttakan
Móttakan getur aðstoðað þig við: Almennar upplýsingar, uppfærsla á klefum, tax free endurgreiðslur, nestisbox o.s.frv. Einnig er hægt að kaupa Wi-Fi aðgang, bíómiða og aðgang að heitum sjópottum í móttökunni.

Nettenging
Hægt er að kaup aðgang að internetinu á aðgangstölvu um borð eða með sérstökum aðgangskóðum í móttökunni. Vinsamlegast athugið að Wi-Fi á hafi úti hefur sínar takmarkanir. Það getur því verið að tengingin sé önnur en þú ert vanur á landi.
Sjá verð
04 timar DKK 40 / € 5.40 – 1GB
19 timar DKK 95 / € 12.83 – 3GB
36 timar DKK 144 / € 19.45 – 6GB
55 timar DKK 220 / € 29.72 – 6GB
07 dagar DKK 495 / € 66.87 – 21GB
Til børn og ung
Börn, unglingar og fjölskyldur geta notið góðra stunda saman um borð.